05. nóvember 2008 klukkan 22:01
Eisi
02. nóvember 2008 klukkan 03:50
Jæja börnin góð.
Ef maður situr við tölvuna, skrifandi bloggfærslu sem skiptir akkúrat engu máli í hinu daglega amstri hversdagsins, klukkan hálf fjögur á aðfaranótt sunnudags......tja... þá er ekki annað hægt að segja en að maður sé frekar sorglegur. Við spúsan fengum okkur örlítið í aðra tánna, en svo lak það yfir í hinar tærnar og það er ekki laust við að eitthvað hafi skriðið í puttana líka. Áttum virkilega gott kvöld. Hvítvín, ostar, Calli Gold, Pink Floyd, Sabbath og Brúsi á fóninum, gerist ekki betra.
Allavega, ég skrifaði tímamóta bloggfærslu hérna í dag sem ákvað síðan að fyrirfara sér áður en hún var gefin út. Hún var svo fyndin að haft er eftir ýmsum merkismönnum í þjóðfélaginu að hún kynni að breyta vatni í vín. Hún var svo spennandi að Baltasar var að hugsa um að kaupa kvikmyndaréttinn. Hún var svo ljúfsár að Emma Thompson, Colin Firth og Sandra Bullock voru öll að missa sig yfir henni. En......... eins og fyrr segir þá ákvað hún að láta sig hverfa þannig að hún kemur aldrei til með að líta dagsins ljós þannig að þið sitjið uppi með þessa ömurlegu færslu.
Allavega... án gríns, á alla vegu sko, ég er ekkert að grínast.
Kjellinn, Tjöppinn og svingurinn.... aka Eisi Cool er kominn í átak. Hætti að drekka kók þann 1.ágúst og hef ekki litið um öxulhásinku né öxl síðan. 7 kg fóru í kjölfarið og sögðu ekki einu sinni bless!!! Byrjaði síðan í WC þann 14.ókt og síðan þá hafa farið 5 kg í viðbót. Ekki kvöddu þau heldur, er farinn að halda að aukakílóin elski mig ekki neitt og vilji í rauninni ekkert vera hjá mér, eða á mér. Til hvers voru þau þá eiginlega að koma???!!? Dísess!
Ég er búinn að fara í ræktina núna 5-6 sinnum í viku að meðaltali og er að fíla það í búmmsjakalaka tætlur! Svo er ég byrjaður að hlaupa úti líka þannig að það lítur allt út fyrir að ég þurfi að fara fá lánuð föt hjá Lilju Þöll áður en langt um líður, sem er fínt þar sem hún á geðveikt röffa töff töff Pearl Jam og Liverpool samfellur. Held ég taki mig virkilega vel út í þeim.
Hillusamstæða
Þessa dagana er Facebook mál málana, eftir að starfsmannasjóðurinn var uppurinn. Í fæðingarorlofsleiðanum (nýtt orð??) þá ákvað ég að fá mér eina slíka og ég verð að segja að ég er less ðenn impresst. Þetta er sosssssuuuum sú sú súdío ágætis afþreying en ég skil ekki hvernig fólk nennir að hanga á þessu tímunum saman. Ég á eitthvað í kringum 200 "vini" en ég þekki einungis svona 50 af þeim. Restin er bara fólk sem hefur addað mér for ðö fönn of itt. Svo er þetta náttúrulega svo yfirmáta gallað dæmi allt saman. Allir þessir leikir og allar þessar kannanir.... Mér er skítsama hvort ég skora hátt á "What kind of a bride will you be" eða "What is your REAL age" eða þá "Witch rockstar are you". Þetta var sniðugt í svona viku en núna er þetta bara orðið afskaplega þreytt. Ég notaði samt tækifærið og henti inn einu lagi með mér inn á prófafríkufílinn minn, bara svona rétt til þess að prómótera kjappann, tjöppann og svinginn. Mátt alveg hlusta á það ef þú vilt ;)
Afruglarafjarstýring
Jæja pæja.... nú er ég orðinn þreyttur og það styttist í rauninni svakalega mikið í að ég verði þunnur þannig að það er best ég fari að hitta heyið en kertavax.
Góða nótt og Guð blessi ykkur öll sömul.
ps. ef þér finnst þessi færsla eitthvað örlítið samhengislaus þá bið ég þig fallega um að að að að að að hafa það í huga að ég var léttur á bárunni þegar ég skrifaði hana.
Eisi
31. október 2008 klukkan 10:03
Jæja, Fjóla er byrjuð að blogga aftur þannig að það er best að ég reyni að henda nokkrum línum niður, en það er þó einungis gert af einskærum leiða.
Núna er ég búinn að vera í fæðingarorlofi í 2 mánuði og ég get sko alveg viðurkennt að ég er orðinn freeeeeeekar þreyttur á því. Ég einfaldlega skil ekki hvernig Fjóla fór að því að vera heima í 6 mánuði án þess að verða geðveik. Allir dagar eru eins og það er fátt sem kryddar tilveruna. Reyndar er búið að vera frábært að fá að eyða svona miklum tíma með Lilju Þöll og fá að kynnast henni almennilega og það er nokkuð ljóst að hún líkist foreldrum sínum ansi mikið. Frekjan getur stundum verið yfirgengileg og það sem hún nennir að láta djöflast með sig er alveg ótrúlegt. En fyrir hvert frekjukast þarf ekki nema eitt lítið bros til þess að bræða mann og láta mann gleyma öllu sem á undan hafði gengið. Hún er líka á þannig tímabili núna að hún er alltaf að læra eitthvað nýtt og þess vegna er alveg hrikalega gaman að fylgjast með henni.
Það hefur vart farið framhjá neinum að það er frekar erfitt ástand á landinu núna en það er hinsvegar búið tala svo mikið um það að maður er eiginlega kominn með ógeð. Þess vegna ætla ég bara að segja eitt, eða tvennt. Ef þú kaust Sjálfstæðisflokkinn þá ertu hálfviti, hreinnt og klárt og ef góðærið var Sjálfstæðisflokknum að þakka, og þeir voru ólatir við að eigna sér heiðurinn af því, þá er kreppan sem því fylgdi Sjálfstæðisflokknum að kenna, staðreynd.
En í svona kreppu ástandi þá þarf maður að nota það sem maður hefur get ég glaður tilkynnt að við Gotti erum að spila hvorki meira né minna en 8. 15. og 29. nóvember og 13. og 20. desember!!!!!! Þannig að það er sama hvað þú reynir, það er ekki séns að þú missir af bræðrunum á Hressó.
Jæja, ég læt þetta duga sem fyrstu færslu í langan tíma, vona að næsta færsla verði eitthvað bitastæðari.
Enda þetta á fegurð sem sést ekki oft á þessum síðustu og verstu, best að njóta hennar á meðan hún varir......
Sexy?
Eisi
03. febrúar 2008 klukkan 20:06
Jæja.....
Það er ýmislegt búið að gerast síðan síðast. Fjóla er eigi kona einsömul lengur og gengur með fallegasta barn í heimi undir undir belti. Það á allt að gerast í mars, nánar tiltekið 9. mars, sem er afmælisdagurinn hans Eiðs afa, væri cool ef það myndi standast.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, það er kalt úti, Liverpool geta ekki rassgat og Pearl Jam eru bestir, ekkert breyst í rauninni en ýmslegt búið að gerast.
Ólafur F Magnússon er aumingi, gráhærður aumingi. Villi Vill er heigull og kúkasleikja. Þegar ég frétti að meirihlutinn væri fallinn þá fékk ég smá í magann, ég einhvernveginn skil ekki hvað er að gerast í höfðinu á þessu fólki, reyndar er Ólafur F sjúkur á geði og því er kannski ekki hægt að ætlast til þess að hann hagi sér eins og hann sé eins og hver annar.
Mér langar til þess að óska öllum þeim sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu borgarstjórnarkosningum til hamingju með að hafa gert sig að fífli.
Helgin var geðveik, við Gotti vorum að spila á Hressó á föstudaginn og gekk það alveg ágætlega. Gotti var reyndar svo gott sem raddlaus og þurfti ég því að syngja meira en vanalega en ég held ég hafi bara landað því ágætlega. Það er skemmst frá því að segja að ég drakk aaaaaaaaaaðeins of mikið af Koníaki og var ég gjörsamlega á rassgatinu þegar við vorum búnir að spila. Skutluðum Gotta heim og þurftum að stoppa á bakaleiðinni svo Hr. Cool gæti ælt..... Mér leið eins og ég væri 16 ára.... Vorkenndi Fjólu alveg hrikalega að þurfa að horfa upp á mig í þessu ástandi. En svona er þetta, það er ekki eins og þetta gerist oft þannig að þetta rétt slapp.
Á laugardagskvöldið fórum við síðan út að borða. Erum búin að vera saman í 5 og hálft ár og ákváðum að gera okkur dagamun. Ákváðum að fara á Rauðará, höfum farið þangað áður og vorum mjög sátt. Fjóla fékk sér humarsúpu, naut og ostatertu og ég fékk mér andabringu, hreindýr og eplaþrennu. Geðveikt!! Hreindýrið var bara bull, þvílík veisla. Það bráðnaði upp í mér. Eftir matinn renndum við á Laugarás og tókum Superbad og the Fast Show sem eru þættir sem eru illa fokking fyndnir. Breskir "skettsa" þættir sem voru sýndir á RÚV fyrir nokkrum árum. Mæli eindregið með þeim.
Takturinn.
Eisi
29. júní 2007 klukkan 19:25
Jæja, það er best að gera aðra tilraun við að skrifa um tónleikana þar sem fyrsta tilraunin hvarf eins og dögg fyrir Sólu frænku í gær.
Ef þú ert að leita þér að ferðasögu frá Koben þá get ég sagt þér það strax að hana nenni ég sko alls ekki að skrifa. Hinsvegar bendi ég þér á www.fjolan.bloggar.is en þar er ferðasagan í öllu sínu veldi.
Við hefjum frásögnina á þriðjudeginum 26.júní síðastliðnum. Fjóla ræsti mig klukkan 13:00 að staðartíma en hún hafði fyrr um daginn laumað sér út og farið á strikið til þess að eyða pening í vitleysu...... eða nei kannski ekki :) Eftir að hafa staupað sig duglega af Konna frænda var haldið til Forum tónleikahallarinnar en þar fóru tónleikarnir fram. Við vorum komin þangað um 3 leytið og stukkum í næstu biðraöð. Húsið átti að opna klukkan 6 og því um lítið annað að ræða en að bíða rólegur. Eftir að hafa beðið í tæpann klukkara hitti ég þá Alan, Mark og John sem komu frá Liverpool til þess að sjá Pearl Jam spila. Ég hafði verið í sambandi við Alan í gegnum netið síðustu dagana áður en við fórum út þar sem þeim vantaði einn miða og ég var með tvo aukamiða sem ég var að reyna selja. Þessir gaurar voru über hressir og færðu mér fullann poka af dóti frá Liverpool þar sem þeir vissu að ég héldi með því annars ágæta félagi. Þeir komu þó ekki einungis með stuðið, brandarana og hláturinn því að þeir færðu mér einnig þær leiðinlegu fréttir að við FJóla værum í vitlausri röð!!!!!!!!!!!!! Röðin sem við vorum í var fyrir fólk sem er í aðdáendaklúbbi Pearl Jam en hin röðin væri hinum meginn við húsið hahaha. Ég var pínu fúll þar sem hin röðin var svona sextán sinnum lengri og breiðari hehee. En það reddaðist þó allt fyrir rest og tíminn leið hratt í röðinni þar sem við sátum á gangstéttinni að sötra bjór og talandi við fólk héðan og þaðan úr heiminum. Dyrnar opnuðust rétt rúmlega sex og hlupum við Fjóla sem leið lá inn í Höllina. Við vorum orðin laglega þreytt eftir biðina í röðinni og eftir að hafa verslað aðeins af Pearl Jam varningi, m.a. þetta vangefna plakat....
ákváðum við að fá okkur sæti í stúkunni. Við sátum þar í u.þ.b hálftíma og ég var gjörsamlega að drepast úr þreytu. Búinn að þræða helvítis Strikið fram og til baka dagana á undann og illa sofinn. Þreytan var hinsvegar fljót að yfirgefa mig þegar sjálfur Eddie Vedder mætti á sviðið og tók eitt lag einn og yfirgefinn með kassagítarinn einann að vopni. Lagið sem hann spilaðo heitir "Throw your arms around me" og er með bandi sem kallar sig Hunter and the Collectors. Flott lag og gæsahúðin var að drepa mig hehe. Hann notaði einnig tækifærið og kynnti til leiks upphitunarbandið sem voru strákarnir í The Futureheads, band sem ég vissi nákvæmlega ekkert um en prísaði mig þó sælann þar sem Linkin Park var að hita upp fyrir Pearl Jam í Polandi og ekki hefði ég viljað þurfa sitja undir því helvíti :) The Futureheads komu mér mikið á óvart og voru bara nokkuð góðir. Áttu líka fullt af lögum sem ég hef heyrt áður í útvarpinu hérna heima þannig að mar gat sungið aðeins með. Þegar þeir luku sér af var komið að stóru stundinni.
Við tók þessi klassíska bið eftir aðalnúmerinu og ég hélt að ég myndi þurfa að bíða þangað til Gilzinegger yrði aftur tísku-íkon á Íslandi. En öll bið tekur enda og Pearl Jam birtust á sviðinu fyrir rest
Ljósin slokknuðu og Master/Slave byrjaði að hljóma í hljóðkerfinu. Gæsahúðin var svo mikil að ég bjóst við flugtaki á hverri stundu. Ég og Fjóla vorum búin að troða okkur eins framarlega og við mögulega gátum og vorum við kannski svona 10 metrum frá sviðinu. Ég sá þá koma sér fyrir á sviðinu og ég byrjaði bara að klökkna...... Svo byrjaði fyrsta lagið en það var Long Road. Rólegt og yfirgengilega fallegt lag sem var ótrúlega vel við hæfi til að opna fyrstu tónleikana þeirra í Danmörk í 7 ár. Ég grét eins og smá stelpa. Tárin bókstaflega hrundu niður og ég snökkti og hristist eins og ég veit ekki hvað, eða jú, eins og smá stelpa hehe. Fjóla gat nú ekki annað en hlegið að mér en mér var alveg sama. Að sjá strákana mína í Pearl Jam standandi á sviði fyrir framan mig er bara eitthvað sem mig dreymir um á hverjum einasta degi og þegar það gerist í alvörunni þá bara get ég ekki haldið aftur af mér. Það sem á eftir kom var hrein geðveiki. Prógrammið þetta kvöld var eitt það besta sem ég hef vitað um og það var ljóst að Pearl Jam ætluðu sér að gera vel við tónleikagestina þetta kvöld.....
Hér er prógrammið í réttri röð:
Ed pre-set: Throw Your Arms Around Me (by Hunters & Collectors)
Set List: Long Road, Corduroy, Why Go, Do The Evolution, In Hiding, Love Boat Captain, Love Reign O'er Me (by The Who), Severed Hand, Light Years, Marker In The Sand, Given To Fly, Breath, I Am Mine, Elderly woman behind the counter in a small Town, Hard To Imagine, Life Wasted, Porch
Fyrsta uppklapp: No More, World Wide Suicide, Down, Once, Black, Alive
Annað Uppklapp: Better Man/(Save It For Later), Rockin' In The Free World (by Neil Young), Yellow Ledbetter
Þegar lagið "Porch" var að byrja var Fjólan orðin frekar andstutt eftir veruna þarna fremst og bað mig kurteysislega um að koma með sér eitthvað aftar. Mér fannst það að sjálfsögðu frekar leiðinlegt en þar sem ég er ekki orðinn svo slæmur enþá að fórna stóru ástinni fyrir Pearl Jam þá samþykkti ég það hehe :) Við færðum okkur upp á svalir sem voru í höllinni og fylgdumst með restinni af tónleikunum þar. Eftir Keep on rocking in the free world talaði Eddie aðeins um atvikið á Roskilde árið 2000 og þeir voru allir hálfgrátandi á sviðinu greyin, það mátti líka sjá mikið af fólki þerra tárin enda margir þarna sem voru á Rosklide og upplifðu öngþveitið og sorgina sem fylgdi í kjölfarið. Svo sagði hann rétt sisvona "In Seattle, this is how we say goodbye" Og Mike McCready byrjaði á Yellow Ledbetter...... Hjartað í mér stoppaði. Og byrjaði ekki að slá aftur fyrr en rétt fyrir sólóið en þá stoppaði það aftur heheehe :)
Nokkrar myndir frá tónleikunum.
Já það var sko stuð á Eddie Vedder þetta kvöld hehe. Stone Gossard stendur í bakgrunninum.
Í Yellow Ledbetter reif Eddie einhverja stelpu upp á svið og söng fyrir hana. Éf fullyrði það hér með að á þessu augnabliki upplifði þessi stelpa sína fyrstu raðfullnægingu hehehe.
Ég er þarna einhversstaðar vinstra meginn við Eddie. Stemningin var svakaleg og hitinn eftir því :)
Meistari Matt Cameron að gera það sem hann gerir best. Hann er gesjúkur trommari og trommaði með Soundgarden áður en hann fór í Pearl Jam en Chris Cornell var einmitt í Soundgarden og hann ætlar að leika fyrir dansi í Laugardalshöll þann 8.sept n.k
Kóngurinn að verki. Mike McCready fór hamförum á tónleikunum og var hlaupandi um allt sviðið. Dúndrandi gítarnöglum út í fjöldann. Sólóin sem hann tók þetta kvöld fékk mig til þess að klóra mér fast í hausnum og var ég stundum agndofa yfir gaurnum.
Jeff Ament með bassann. Algjör snillingur sem hannar vel flest plötuumslög sem PJ lætur frá sér. Ótrúlega flottur bassaleikari sem tók sig til á tónleikunum og spilaði á raf-kontrabassa, sem var bara cool
Munurinn á þessum tónleikum og tónleikunum í Berlín í fyrra var fyrst og fremst reynslan. Á tónleikunum í fyrra var ég eiginlega bara dofinn allan tímann, var allt of lengi að klípa mig og telja sjálfum mér trú um að Pearl Jam væru virkilega að spila fyrir framan mig. Við vorum líka í stúkunni allann tíman í Berlín og fékk maður því ekki að taka eins mikinn þátt í herlegheitunum. Núna var ég hinsvegar með allt á hreinu. Naut hverrar mínútu og söng ef mig langaði að syngja, öskraði ef mig langaði að öskra, veifaði ef mig langaði að veifa og jú, grét ef mig langaði langaði að gráta :)
Eisi
Eisi
22. júní 2007 klukkan 21:17
Akkúrat núna er ég að hrofa á Geir Ólafsson gjörsamlega skíta í buxurnar í Kastljósinu. Maðurinn er gjörsamlega veruleikafyrrtur með öllu og ætti helst ekki að fá að ganga laus á meðal manna. Jesús minn!!!!!!
Núna er minna en 12 tímar þangað til við Fjóla förum í loftið frá Leifstöð Flugs Eiríkssonar. Haldið verður af landi brott á slaginu klukkan sjö í fyrramálið. Áfangastaður er Danmörk, en það er landið sem átti Ísland einu sinni. Íslenski lopinn vann baki brotnu fyrir danska konungsdæmið og fékk ekkert nema híðingar og háðsglósur að launum. Samt sem áður heimsækjum við Danmörk alveg villt og galið og sumir jafnvel setjast þar að og lifa á Sosialnum og reykja hass. Sem er sossum allt í lagi ef út í það er farið á annað borð.
Ástæða ferðarinnar er þó ekki einungis að heimsækja þessa fyrrum drottnara okkar heldur ætlum við að skella okkur á tónleika á þriðjudaginn. Og það eru sko ekki bara einhverjir venjulegir tónleikar gæskan, ó nei ó nei. Pearl Jam var það heillin!!!!!! Jamm við skötuhjúin ætlum að skella okkur á Sultuna í annað skiptið á jafnmörgun árum en í fyrra fórum við á tónleika með þeim í Berlin á afmælisdaginn minn þann 23. september. Þessir tónleikar sem eru á þriðjudaginn eru fyrir margar sakir mjög merkilegir. Fyrir 7 árum spiluðu Pearl Jam á Roskilde Festival. Tónleikarnir gengu vel framan af þrátt fyrir mikinn fólksfjölda og slaka öryggisgæslu. Allt fór þó á versta veg þegar troðningurinn var orðinn svo mikill að 9 manns létust. Þetta var að sjálfsögðu mikið áfall fyrir Eddie Vedder og félaga og hafa þeir ekki heimsótt Danmörku eftir þetta. Nú er hinsvegar komið að því og er talað um það að þessir tónleikar verði þeir mögnuðustu sem Pearl Jam hafi spilað á. Þeir taka sér 4 daga frí á evróputúrnum fyrir þessa tónleika til þess að slaka á og safna kröftum. Ég er búinn að lesa nokkur viðtöl við melimi bandsins, m.a. Jeff Ament og Mike McCready og segja þeir báðir að bandið muni leggja allt í sölurnar á þessum tónleikum. Það sem ég er mest spenntur fyrir er að fá að heyra lög sem ég hef hingað til ekki heyrt þá taka á tónleikum. Pearl Jam eru nebbla svo miklu miklu meira en bara hittararnir og ég vona svo sannarlega að þeir komi til með að henda einhverju óvæntu í grímuna á mér og Fjólu :-)
Allavega, kominn tími á að kveðja og ég skil þig eftir með þá skemmtilegu staðreynd, já ég segi staðreynd, að verslunarmannahelgin á Sigló kemur til með að vera Snilldin Ein í alla staði. Það er nokkuð ljóst.
kv. Eisi, Takturinn, Eisi Cool, Sokkur, Eisti, Bumbi
Eisi
17. maí 2007 klukkan 23:00
AAAAAAAAAAAAAAAawell awell awell awell awell avú! Tell me more tell me more did she look very bright tell me more tell me more did she seem scared at night!!!!!
Já það er Uppstigningardagurinn í dag og þá eru allir í fríi.....nema ég að sjálfsögðu þar sem ég reif mig upp klukkan hálf tíu og var á vaktinni á FM frá 10-14. Það var stuð að vanda enda er alltaf gaman þegar Eismundur Coolsen tekur sig til og opnar fyrir mækinn.
Uppstigningardagurinn......................................Dagurinn sem Jón Sig steig upp og sagði "Vér mótmælum allir"..... Dagurinn sem Davíð Oddson steig upp og sagði "Ég er hálfviti".........Dagurinn sem Steven Gerrard steig upp og skallaði boltann framhjá Nelson Dida........ Dagurinn sem Eisi Cool sagði "Hingað og ekki lengra......KFC í forsetastólinn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!"
Nei ég veit það ekki, ég veit ekkert hvað þessi dagur þýðir eða fyrir hvað hann stendur. Það eina sem ég veit er að Fjóla er í fríi og það er æðislegt. Mér finnst svo gaman þegar Fjóla er í fríi. Hún vaknar öll úldin og sæt, klæðir sig í náttfötin, labbar fram, og áður en ég get sagt "Eddie Vedder, þú kemur mér til" þá er hún komin með sópinn í hönd og byrjuð að þrífa. Hún Fjóla mín er þrif-óð.....sem er sko ekkert til þess að skammast sín fyrir. Það er líka kannski eins gott þar sem ég er með heilkenni sem nefnist á fræðimálinu "Cleanophobia"....... Það er ekkert skemmtilegt sko, ég bara einfaldlega get ekki þrifið... Ég kann það alveg, og ef ég fengi borgað fyrir það þá myndi ég sko alveg gera það. En á meðan svo er ekki þá er það mér algerlega lífsins ómögulegt að taka til hendinni heima hjá mér. Þess vegna þakka ég guðunum fyrir hana Fjólu mína. Já og það er sko ekki það eina sem mér finnst skemmtilegt við að Fjóla sé í frí ha? Nei! ha? Nei!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!. Hún er einfaldlega alltaf svo skemmtileg þegar hún er í fríi. Ekki það að hún sé eitthvað leiðinlega þegar hún er ekki í fríi, heldur er bara einhver svona ljómi yfir henni sem kemur mér í gott skap. Ég er að bulla sem er gott eða kannski ekki eða kannski bara víst ég er veðurfréttamaður.
Stórfrétt!!!!!!
Já góðir hálsar.... Það er nú ekki oft sem ég get komið með skúbb hérna á þessu annars hundleiðinlega bloggi mínu. En ég get sagt þér það að það er nýr þáttur að fara í loftið á FM957. Þetta er þáttur sem verður í umsjón minni og Stínu sem var í Zúuber. Þetta verður svona einskonar magasín þáttur þar sem fjallað verður um allt á milli himins og jarðar. Þátturinn heitir Tivolí og fer fyrsti þátturinn í loftið á laugardaginn. Þetta er fjögurra tíma þáttur sem er í loftinu á milli 10 og 14 og ég skora á þig að hlusta á fyrsta þáttinn, þá væriru allavega að gera mér stórann greiða :) Þetta er liður í að gera helgarnar á FM aðeins stærri en þær hafa verið undanfarið. Þannig að eins og ég segi, það er eins gott fyrir þig að hlusta :)
Stórfrétt Endar.
Núna eru u.þ.b 2 og hálfur mánuður í sumarfríið mitt..... Ég verð í fríi allann águst og ég get hreinlega ekki beðið. Það verður geggjað að geta slakað á með Fjólunni. Við getum gert það sem við viljum og þurfum ekki að hafa áhyggjur af neinu. Lengi vel var planið að fara í sumarfrí með Norrænu og taka Skandinavíu á þetta. Eftir miklar pælingar var hætt við þá svaðilför enda frekar dýrt dæmi og við erum ekki alveg á þeim buxunum að fara eyða ÖLLUM peningnum okkar í Tuborg og sænskar kjötbollur. Planið þessa stunduna er að fara í keyrilag um vestfirðina...... í fyrra fórum við í keyrilag um austfirðina og ég get sko alveg sagt þér það að það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Bara við tvö að segja aulabrandara og skemmtandi okkur saman, ég verð að segja að það er ansi freistandi að gera þetta aftur :)
Allavega, þá er tankurinn tómur, krani með bómur og eitthvað sem rímar við bómur.
kv. Takturinn.
Eisi
13. maí 2007 klukkan 15:10
Fékk þetta lánað af einhverju bloggi sem ég var að skoða, sýnir svart á hvítu hversu mikill snillingur Homer Simpson er.... Ef þetta fær þig ekki til þess að hlæja þá ertu Sjálfstæðismaður.....
- Operator! Give me the number for 911!
- Oh, so they have internet on computers now!
- Bart, with $10,000, we’d be millionaires! We could buy all kinds of useful things like…love!
- Just because I don’t care doesn’t mean I don’t understand.
- I’m normally not a praying man, but if you’re up there, please save me Superman.
- Son, if you really want something in this life, you have to work for it. Now quiet! They’re about to announce the lottery numbers.
- Well, it’s 1 a.m. Better go home and spend some quality time with the kids.
- Maybe, just once, someone will call me ‘Sir’ without adding, ‘You’re making a scene.’
- Marge, don’t discourage the boy! Weaseling out of things is important to learn. It’s what separates us from the animals! Except the weasel.
- Doughnuts. Is there anything they can’t do?
- You know, boys, a nuclear reactor is a lot like a woman. You just have to read the manual and press the right buttons.
- Lisa, if you don’t like your job you don’t strike. You just go in every day and do it really half-assed. That’s the American way.
- When will I learn? The answer to life’s problems aren’t at the bottom of a bottle, they’re on TV!
- Son, when you participate in sporting events, it’s not whether you win or lose: it’s how drunk you get.
- I’m going to the back seat of my car, with the woman I love, and I won’t be back for ten minutes!
- [Meeting Aliens] Please don’t eat me! I have a wife and kids. Eat them!
- What do we need a psychiatrist for? We know our kid is nuts.
- Marge, you’re as beautiful as Princess Leia and as smart as Yoda.
- Kids, you tried your best and you failed miserably. The lesson is, never try.
- The only monster here is the gambling monster that has enslaved your mother! I call him Gamblor, and it’s time to snatch your mother from his neon claws!
- When I look at the smiles on all the children’s faces, I just know they’re about to jab me with something.
- I’m having the best day of my life, and I owe it all to not going to Church!
- Lisa, if the Bible has taught us nothing else, and it hasn’t, it’s that girls should stick to girls sports, such as hot oil wrestling and foxy boxing and such and such.
- I’m not a bad guy! I work hard, and I love my kids. So why should I spend half my Sunday hearing about how I’m going to Hell?
- Getting out of jury duty is easy. The trick is to say you’re prejudiced against all races.
- It’s not easy to juggle a pregnant wife and a troubled child, but somehow I managed to fit in eight hours of TV a day.
- Lisa, Vampires are make-believe, like elves, gremlins, and eskimos.
- I want to share something with you: The three little sentences that will get you through life. Number 1: Cover for me. Number 2: Oh, good idea, Boss! Number 3: It was like that when I got here.
- Oh, people can come up with statistics to prove anything, Kent. 14% of people know that.
- Remember that postcard Grandpa sent us from Florida of that Alligator biting that woman’s bottom? That’s right, we all thought it was hilarious. But, it turns out we were wrong. That alligator was sexually harrassing that woman.
- Old people don’t need companionship. They need to be isolated and studied so it can be determined what nutrients they have that might be extracted for our personal use.
- How is education supposed to make me feel smarter? Besides, every time I learn something new, it pushes some old stuff out of my brain. Remember when I took that home winemaking course, and I forgot how to drive?
- Television! Teacher, mother, secret lover.
- Homer no function beer well without.
- I’ve always wondered if there was a god. And now I know there is — and it’s me.
- Kill my boss? Do I dare live out the American dream?
- If something goes wrong at the plant, blame the guy who can’t speak English.
- I’m never going to be disabled. I’m sick of being so healthy.
- I like my beer cold, my TV loud and my homosexuals flaming.
- [Looking at a globe map…country being Uruguay] Hee hee! Look at this country! ‘You-are-gay.’
- All my life I’ve had one dream, to achieve my many goals.
- Dad, you’ve done a lot of great things, but you’re a very old man, and old people are useless.
- But Marge, what if we chose the wrong religion? Each week we just make God madder and madder.
- I think Smithers picked me because of my motivational skills. Everyone says they have to work a lot harder when I’m around.
- Dear Lord.. The gods have been good to me. For the first time in my life, everything is absolutely perfect just the way it is. So here’s the deal: You freeze everything the way it is, and I won’t ask for anything more. If that is OK, please give me absolutely no sign. OK, deal.
- That’s it! You people have stood in my way long enough. I’m going to clown college!
- Beer: The cause of, and solution to, all of life’s problems.
- If something’s hard to do, then it’s not worth doing
- I’m in no condition to drive…wait! I shouldn’t listen to myself, I’m drunk!
- ‘To Start Press Any Key’. Where’s the ANY key?
Eisi
08. maí 2007 klukkan 20:49
When the truth is fouououound and issssssss lied!!! And to now fo sho!!!!! ANd to never be a clown!!!!! Don´t you want somebody to love, DOOOOOn´t you need somebody to love, vúldent you like somebody to love i better need somebody to luvvvvvvvv OH YEAH!!!!
Eða einhvernveginn þannig.
Komiði öll sömul blessuð og sæl, eins og Nonni Sæli segir alltaf. Hvað er að frétta eiginlega segi ég nú bara hey hó!!!! Það er alveg bara ágætt stuð á mér enda eru kosningar í að hefjast. Mér líður alltaf svo rosalega vel innra með mér þegar það fer að nálgast kosningar. Það er eitthvað svo skemmtilegt andrúmsloftið í landinu. Það er svona svipaður fílingur í fólkinu í landinu þessa dagana og fólkinu sem fór á fund til þess að fræðast um pýramida fyrirtækið "Gold Quest". "Þetta er ekkert mál, þú þarft bara að kaupa "starter pack" á 200.000 og selja fyrir 150 þús og þá ertu bara byrjaður að græða. Þetta er alveg skothelt. Ég meina, hver vill ekki kaupa gull???????????? Það vilja allir kaupa GULL!!!!?!?!" Svo skellti fólkið sér á starter packann en þessar upphaflegu 200.000 krónur hækkuðu víst upp í 500.000 þar sem ýmis skuggagjöld og nefskattar voru til staðar sem ekki var sagt frá í kynningunni. 500.000 kr. fátækari hélt fólkið með Sólheima glottið útaf fundinum teljandi sér trú um að það yrði sko EKKERT mál að selja fyrir 150.000 kall, enda væri minnsta málið að selja gullpeninga, ég meina hver vill ekki kaupa GULL!!!!!! En svo kom allt í einu í ljós að það er bara fjandi erfitt að selja gull. Og fólkið græddi bara ekki neitt á þessu, heldur tapaði öllum peningum sem það setti í þetta. Það voru bara þeir sem áttu peninginn fyrir, sem græddu hann.
Hvar hef ég heyrt þetta áður???!!??!!? Hmmmmmmmm.
Mikið ROSALEGA er Framsóknarflokkurinn búinn að auglýsa mikið. Hann er allstaðar. "Árangur áfram - Ekkert stopp".......þessi setning er að verða eins og "Nei þýðir nei, nauðgun er glæpur". Þetta er bara allsstaðar. Framsókn eru svo logandi hræddir um að missa það litla fylgi sem þeir hafa að þeir eyða öllum heimsins peningum í sjónvarðs-útvarps- og blaða auglýsingar. Sem er svo sem allt í lagi, þar sem þau þurfa svo sannarlega á því að halda.
Eitt er það þó sem fer virkilega fyrir brjóstið á mér varðandi auglýsingaherferð Framsóknarflokksins. Einn armur herferðarinnar, sá armur sem herjar aðallega á útvarpið gamla góða, er svo viðurstyggilegur að það hálfa væri nóg. Fyrir nokkrum vikum var fólki gert kunnugt um að www.kind.is væri heimasíða Ungra Framsóknarmanna. Það er húmor í léninu, enda Framsóknarmenn löngum verið tengdir við bændastéttina. Útvarpsauglýsingarnar eru þannig úr garði gerðar að einhver auli er að stikla á stóru úr stefnuskrá flokksins og eftir hvert stefnumál heyrist einhver annar auli jarma "XB". Þegar ég heyrði þessa auglýsingu fyrst þá þótti mér hún nokkuð skondin og skemmtileg. En þegar ég fór að spá aðeins í þessu og krifja málið til mergjar, komst ég að því að þetta er enn ein örvæntingar tilraunin frá deyjandi stjórnmálaafli.
Hver ætli markhópurinn sé fyrir þessar auglýsingar??? Nú er ég að vinna á FM957 og eru þessar auglýsingar mikið birtar þar. Ég hlusta mikið á X977 og þar eru þessar auglýsingar í svo gott sem öllum "slottum". Þessar tvær útvarpsstöðvar svo gott sem EIGA eyru hlustenda á aldrinum 12-30 ára. Ef að ég væri 18 ára gamall þá þætti mér þessi auglýsing án efa virkilega fyndin. Ég myndi líklegast hugsa "HEHEHE gaurinn er að jarma eins og meme híhíhíhí, best ég kjósi þetta X-B dótarí" Og það er akkúrat það sem Framsókn er að sækjast eftir. Að krakkar, sem eru ekkert endilega að spá í hvaða málefni, fólk eða skoðanir þeir eru að kjósa, taki sig til og merkji "X" við gamla og úr sér gengna "Bé-ið".
Mér finnst þetta fáránlegt í alla staði og sett stórt spurningarmerki við allar kosninga auglýsingar sem innihalda vott af húmor. Ég er ekki að fara kjósa einhvern vegna þess að mér finnst hann fyndinn eða skemmtilegur, það eru alveg hreinar línur. Húmor á einfaldega ekki heima í kosningabaráttu, og þegar litið er á ástandið hjá hinum ýmsu þjóðfélagshópum þá sér fólk að það að blanda kímni í pólitík er eitthvað sem er ansalegt og í besta falli pervertískt.
Það er spurning hvort að aldraðir eru til í að brosa út í annað og hrósa Framsókn og Sjálfstæðisflokknum fyrir húmorinn og halda síðan áfram að búa á ganginum á Hrafnistu.
Það er spurning hvort að öryrkjar séu til í að gleyma sínum erfiðleikum og hlæja pínulítið að "hnyttnum" auglýsingum frá XB og XD og þakka í leiðinni fyrir örorkubæturnar sem eru ekki skítur á priki.
Það er spurning hvort að ungt fólk sem er að reyna kaupa sína fyrstu íbúð klappi fyrir stjórnarflokkunum þegar það skrifar nafnið sitt undir 90% lánið sitt frá Glitni, þar sem ungu fólki í dag er það gjörsamlega ómögulegt að kaupa sér heimili nema með lánum.
Hvernig væri að sleppa húmornum bretta upp ermarnar og DRULLAST TIL ÞESS AÐ GERA EITTHVAÐ SEM SKITPIR MÁLI!!!!!!!!!!!
Bendi á frábæri færslu sem pabbi skrifaði á bloggið sitt www.kameldyr.blog.is.
kv. Eisi
Eisi
19. apríl 2007 klukkan 13:08
Jæææææææææjjjjjaaaaaaaaaaaaaa........................................
Spurning um að fara blogga eitthvað..... Neeee.... ég nenni því nú varla.
Vinna....Vinna..... Vinna..... Sofa smá.....Vinna....Vinna..... Vinna.....Dotta í fimm mínútur.....Vinna Vinna Vinna Vinna
Hér að ofan er greining á dögum Taktsins að undanförnu. Ég er þreyttur..... Svoooooooooo Þreyttur.
Langar í frí, langar svo ÓTRÚLEGA mikið í frí.
Rúmlega 2 mánuðir í PEARL JAM....... Ég er að fýla'ða.
Seacrest nei ég meina Takturinn out
Eisi